Málavefur VSÓ er aðgangsstýrður útboðsvefur. Hægt er að fá aðgang að rafrænum forvals- og útboðsgögnum sem VSÓ hefur umsjón með fyrir viðskiptavini sína.
Áður en hægt er að nálgast gögn á málavefnum þarf að nýskrá sig og skrá sig svo inn sem notanda. Eftir að notandi hefur skráð sig inn birtast upplýsingar um þau útboð sem í gangi eru. Undir hlekknum „Mín mál“ birtast þau mál sem viðkomandi notanda eru tengd. Eftir að notandi hefur skráð sig sem þátttakandi í tilteknu forvali eða útboði fer öll upplýsingagjöf og gagnaafhending fram á vefnum.
Öryggi
Aðgengi að upplýsingum á Málavef VSÓ er stýrt með aðgangs- og lykilorðum. Sérstökum gagnasvæðum er úthlutað fyrir hvern notanda og hefur hann einn aðgengi að upplýsingum, sem þar eru vistaðar. Beitt er öruggum rekjanlegum aðferðum við úthlutun og notkun aðgangsorða, en hver notandi ber ábyrgð á meðferð og notkun upplýsinganna, sem birtar eru á viðkomandi gagnasvæði.